www.gruppan.tk - Rjómi Selfoss!!

02.05.2011 20:23:46 / hrossi

Einu sinni var...

Hvað haldiði að ég hafi fundið á netinu. Jújú, mikið rétt, Grúppuna.

Fannst alveg kjörið að setja eins og eitt fótspor á síðuna svona svo hún lifi aðeins lengur. Annars er orðið heldur langt á milli blogga og lítur það þannig út að ég er sá eini sem sinnir því. En það er annars í góðu lagi vegna þess að ég er líklega sá eini sem les það.

Þið eruð allir búnir að gleyma þessu ekki satt?
Ef svo skemmtilega vill til að einhver ykkar drengja kíkji inn á síðuna þá væri gaman að sjá comment.

Ég ætla allavega að hefja þessa síðu á loft aftur. Upp í dýrðarljóma og sali guðanna. En líklega verður hér að finna einungis pælingar hversdagsins í amstri minna anna. En hvað um það.

Heilir og sæli vinir góðir,
Stefán.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 02:31:39 / hrossi

Jæja

Hvað er að frétta?


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 21:17:56 / hrossi

Hvað gerðist?

    Það var eitt sinn er ég var á rölti um götur Selfossbæjar að lítill fugl kom svífandi að mér og sagði við mig: ,,Síðan ykkar er að morkni komin og láti enginn að sér kveða verður hún að niðurnýttri sorphulsu.'' Ég tók þessari speki frá litla þrastarunganum til mín og ákvað að slá á léttar nótur og koma einu litlu bloggi í skap og þeyta því yfir vefheiminn.
    Meðan ég sit í andúð minni fyrir framan imbakassann og horfi á spennandi þátt á Skjá 1 veit ég allt í einu ekki hvað ég á að segja. Þannig að mig datt í hug ein staka sem ég samdi hérna á árum áður og fjallar hún um ungan dreng sem á þessa síðu með oss.

            Fortíð í veginn flogin

Freistingin tælir þig

Lostinn þá frá mér soginn

Og sorgin hún bítur mig

    Ég kýs að kalla þessa stöku
,,Minning um forna slóð''

            Hvað er það sem hugsar þú?

Hvernig viltu vera?

Ef einskins er nú óskin sú

Hvað hefur þú að bera?


    Þessa stöku vil ég að þið allir takið til ykkar og hugsið um teymið Grúppuna

Gunni litli lætur sig ei vanta

Lekur mjöður um hann á alla kanta

Þó svo hann ekk’í partý mæti

Þá tekur hann á því með miklu sómakæti

 

En þó að Gunna gangi vel í drykkju

Er glaumurinn oft svo mikill

Að hann leggur oft á leið sína lykkju

Og veltist um eins og lítill hnykill

 

Gunni litli á það samt oft til

Að ganga ögn of langt

En þó það gangi hér um bil

Er sumum sem finnst það rangt

 

Gunna er sama hvað öðrum finnst

Hann drekkur eins og hrútur

Aldrei hef ég þó öðrum kynnst

            Sem þykir annar eins kútur

    Þessa kalla ég þó Gunnarsdrápa

    Takk fyrir Stefán kveður - taki til sín sem eigi


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 19:35:52 / lögg

Hey

Tetta er frekar slapt, tetta er eins og ad vera à blidu stefnuloti med feitri gellu. Engin segir neitt.
Eg mana ykkur til ad skoda bloggid mitt
www.bonandri.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 01:53:00 / Bakkmann

Halló litli jólasveinn?

Ég er þrem dögum frá því að skíra þessa síðu "hugsanir bakkmans" því það er ekki að sjá að aðrir grúppumeðlimir taki sér tíma til að kvitta fyrir sig...

Okey þið eruð að "útskrifast" úr þessum skólum og vesen... vúpdídú fyrir ykkur það er bara alls ekkert afrek, eithvað sem gerist útum allan heimá hverjum einasta degi!! því hafið þið í raun ennga afsökun fyrir leti og sjálfsmorðshugsunum.

En það sem mig langar að taka fyrir þetta fína laugardagskvöld er tyggjóið sem fólk treður uppí sig dagsdaglega. Ekkert að því, Extra er víst hollt fyrir tennurnar og hvet ég fólk til að kaupa sér einn silfurlitaðann extra og tyggja frá ykkur lífið. EN! þegar fólk tekur þetta tyggjó útur sér, gerir úr því litla viðbjóðslega kúlu og plantar því bara á diskinn sinn eða bara hvar sem er! Síðan er jafnvel troðið þessu aftur uppí sig eftir að það hefur matast! Er ekki í lagi?? Við búum á ÍSLANDI og erum siðmenntað fólk! Samkvæmt nýjustu könnunum er ísland besta land í heimi! samt virðist vera ómögulegt fyrir fólk að HENDA tyggjóinu sínu þegar það vill annahvort fá sér snæðing eða svala þorstanum. Hvað er þá að stoppa mig í að að taka útur mér stóran bita af jólasteikinni og GEYMA bara á disknum á meðan ég fæ mér smá pepsi? er það ekki sami hlutur? það held ég nú!

Næst þegar ég verð vitni að þessum barnaskap þá mun ég ekki hika við sparka í klofið á þeirri manneskju sem gerir sig sekan um þessi mistök.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 03:27:58 / Bakkmann

Hofsvos

Sindri skrifar eftirfarandi:

"Afhverju er grasið hanns ekki eins og mitt gras?" Þessi spurning er án efa sú spurning sem er á vörum flest allra íslendinga þessa dagana. (er íslendinga skrifað með stóru í-i?) En það sem margir átta sig ekki á er að það er önnur spurning þarna úti, spurning sem allir þekkja en enngin veit svarið við. þetta er spurning sem við höfum spurt frá því við þrifum klósettið heima hjá Stjána frænda, frá því við sáum fyrsta geimskipið sem lennti á Selfossi eða jafnvel þegar við keyptum okkar fyrstu nærbuxur. Spurning er einföld en jafn framt of flókin fyrir snjöllustu menn okkar tíma. Einstein tókst ekki að svara þessari spurningu, Guðna Bergs hefur ekki enn tekist það og líklega mun enngum takast að svara henni í framtíðinni.

Til þess að gera sér grein fyrir spurningunni þarf að hafa það á hreinu að lífið er ekki sjálfgefið. Lífið þarfnast gífurlegrar vinnu og átaka, lífið þarnfast kænsku og hæfni til að aðlagast. Og það sem skiptir kannski mestu máli er að við þurfum að horfast í augu við heiminn eins og hann er. Kapteinn Kirk sagði eitt sinn að lífið væri eins og blóm með fjórum augum... Maður veit ekki alltaf hvað maður fær en maður sér allavega allt. Auvitað er ekkert vit í þessum orðum kapteinssins knáa en hann er allavega með hjartað á réttum stað. Inní maganum á sér.

Spurningin sem ég minntist á áður í þessum pistli er einföld... Afhverju er meðal hæð mannsinns ekki 8cm. stærri?... Ykkur fynnst þetta væntanlega fáranleg spurning en veit einhver af ykkur svarið? Ég giska á að 90% af þeim sem lesa þetta segja nei, hin 10% segja líka nei. Til þessa að skilja spurninga eins og hún á að vera þarf að setja sig í aðstæður fátæks eskimóa sem býr í lítlu píramída húsi í egyptalandi. Eskimóa sem lét lífið því hann náði ekki að teygja sig í veiðistöngina til að drepa hákarlinn sem var að éta hann, hefði eskióminn verið 8cm. lengri hefði hann náð stönginni og náð að veiða hákarlinn... en hann var bara ekki 8cm. stærri.

Því bið ég ykkur, sem lásuð þennan pistil minn, að hafa það í huga næst þegar þið eruð að smyrja ykkur samloku og náið ekki í ostinn sem er lengst inní ískáp og hugsið kannksi "oh ef ég væri bara 8cm. stærri" að það er fólk sem hefur dáið vegna þess að það var ekki 8cm. stærri... en þið eruð bara að reyna að ná í ykkar dýrmæta kúarmjólkurafurð! Þið eruð öll SJÚK! og eigið ekki skilið að lifa á sömu plánetu og ég!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 01:41:23 / lögg

Minnig um önn

Ég ákvað að setja niður nokkrar hugsanir hérna.



Ég vill byrja á að þakka Moe fyrir skemtilega viku..hvað er samt að? en spáum ekki meira í því, þetta er bara drengur sem er á einhverri villigötu sem ég held að hann komist af einhverntíman.

Ég er í heimspekiáfanga ásamt fleirrum, þetta er án efa skemmtilegasti áfangi sem ég hef farið í. Þessar pælingar og dót, þetta er bara geðveikt. Mæli hiklaust með þessu. En er það ekki frekar úrelt að vera heimspekingur? Hér áður fyrr reikuðu heimspekingar um jörðina með lærisveinum sínum og fundu svörin við leyndardómum lífsins, þeir höfðu það bara ágætt. Hvað gerir nútíma heimspekingur....hann lifir nu ekki bara á loftinu einu saman.




Ég og Fannar sonur minn komumst að því að eina kommúnismasamfélagið sem hefur gengið upp eru Strumparnir, svo var ég spurður. Ef Strumparnir voru kommar var þá Kjartan fasisti? Já ef fastistar borða komma.



Lokavikan í skólanum er hafin, síðustu dagar mínir í Fsu ef Guð eða einhver annar lofar. Það setur samt svartan blett á þessa viku að Hrefna Clausen er að drekkja manni í lærdóm, skipilagið er alltaf á hreinu hjá henni Hrefnu. Ég get samt ekki beðið eftir að kveðja þennan skóla á föstudaginn. Að því tilefni hittumst ég, stebbi, fannar sonur minn og nonni heima hjá nonna til að semja texta við nokkur vel valin lög, það heppnaðist bara nokkuð vel þó ég segi sjálfur frá. Reyndar var ölið farið að flæða helvíti vel undir lokinn á þessari textagerð, ég er samt sannfærður um að það hafi hjálpað til við gæði textana, enda verð ég blindfxxxxr næsta föstudaginn að syngja þá. Þannig ég hvet alla til að mæta í skólan á föstudaginn, en annars verða þessir textar gerðir opinberir hér strax eftir Dimmisjón.




Ég er að hlusta á Bob Dylan akkurat nuna og það hefur komið mér í stuð til að fara yfir þessa önn sem er nú að renna sitt skeið.

Þegar ég fer að hugsa um það, þá er ekki mikið sem þessi önn skilur eftir sig annarð en mikið af frítíma, mikið horft á þætti, 3 söguverkefni 1 heimspekidagbók 1 ritgerð um Being John Malkovich og fullt af ókláruðum verkefnum í Frakkanum. Ég komst þó að því að SS-sveitir hitlers gengu um í Hugo Boss göllum (hafðu það Alli) Það útskýrir kannski vinsældir Hugo Boss í dag eða hvað ? Eitt sem að stendur upp úr er hvað allir Nillararnir eru búnir að standa sig vel og halda út í skólanum (nema sumir af þeim) nefni engin nöfn Kalli og Sjonni. Þannig þetta er búin að vera slakasta önn ever hjá mér, efast um að ég komist í svona gott aftur, nema ég fái mér vinnu sem sundlaugarvörður í Hveragerði.



Ég var líka að spá í einu, hvar er V-alli? Frétti af honum að dúllast í Smáratúninu sem er ekkert nema gott, elska þig Alli. Ég og Fannar sonur minn fórum um daginn að hitta Garðar í nýju stúdentagarðaíbúðinni sinni, það var gaman og gott, mér brá ekkert smá að sjá Garðar, hann er kominn með svo feita mottu að Tom vinur hanns Alla yrði frekar abbó. Annars var þetta ekki frásögufærandi, fyrir utan það að ég vann Fannar son minn svo feitt í Pro að annað eins hefur ekki sést. Ég sem er ekki þekktur fyrir leikni í Pro kom þarna inn sem the underdog Finnland og yfirspilaði the favorite Brasilíu gjörsamlega, brasilíska sólin skein ekki í marga daga eftir á en Mika Hakkinen tók á móti okku í Finnlandi með 58 kössum af hágæða öli og 28 lítrum af rússneskum vodka sem hann keypti í fríhöfninni, og auðvitað djömmuðum við alla næstu viku, enda Finnar og erum ekki þekktir fyrir að hata ölið né annað áfengt efni.



Þetta var nú gaman, en hér segi ég stopp.

Andri Már


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 21:34:00 / iggipó

Simmi Feiti

jójóó. hvað segiði hafiði horft á simma nýlega hann hættir ekki að fitna :S..

en jamm ég var að spá útaf ég er í 4 . sæti í draumadeildinni hvort við sko

við strákarnir værum ekki til , sko líka háskóla mennirnir  hvort við ættum ekki að taka svona jólafest aftur eða fara í jólahlaðborð saman eða e-h ?   


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 22:06:05 / jensen

Opið bréf til Sindra

Kæri Sindri,

við strákarnir erum búnir að stija sveittir á neyðarfundi á Hótel Sögu í allan dag.
Ástæða fundsins er auðvitað sú að þú sagðir þessa síðu, sem að þú ert meðlimur á, "glataða".
Á milli þess sem menn bölvuðu þér og tóku reiðiköst vegna þessa ummæla komu þó fram nokkrar góðar hugmyndir. Meðal þeirra var sú að sekta þig og gefa peningin í góðgerðarmál og einnig að fara með þig út á hringtorg á Austurvegi og rassskella þig.
Eftir miklar vangaveltur og ráðfæringar við lögfræðinga og upplýsingafulltrúa Sameinuðu Þjóðanna, komumst við að þeirri niðurstöðu að setja þér ekki stólinn fyrir dyrnar, heldur gefa þér opinbera aðvörun gegn frekari ósæmilegri hegðun.
Það þýðir að næst þegar þú hegðar þér ómannsæmandi undir flöggum Grúppunar Group hf., þá munu ýmsir óprúttnir aðilar hella úr reiðiskálum sínum yfir þig.
Einnig verður þú þá sviptur öllum blogg-leyfum á http://www.blog.central.is/gruppe og prófíl, öllum þínum athugasemdum og bloggum verður umsvifalaust fjarlægt af síðunni og innan viku verður þú orðinn gleymdur.

Mundu þetta Sindri Bachmann!

Virðingafyllst,
fyrir hönd Grúppunar Group hf.,
Alexander Jensen Hjálmarsson

» 15 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 15:34:50 / pilot

Almost Famous

Jájá.....Við sem sáum okkur ekki fært að mæta á Ariwaves sátum alls ekki heima í fýlu. Við létum drauminn rætast og lifðum sem rokkstrjörnur í eitt kvöld.  Leigðum okkur hljómsveitarrútu og máluðum bæinn rauðann.  Stemmingin var einhvernvegin svona --> http://www.youtube.com/watch?v=7Qn3tel9FWU 

Svo tók ég nokkrar myndir líka..........  http://www.photobox.co.uk/album/6802495 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 01:35:35 / Bakkmann

Hægt-Hratt og putti í rass

Afsakið!! varð bara að fá útrás fyrir listamanninum í mér... og það er langt síðan svona skemmtileg blogg hafa komið sem tengjast ekki knattbolta. Og hér kemur eitt þannig og málsefnið er eithvað sem allir kannast við!


ÉG! var að pæla í ef t.d. the Flash sem getur hreyft sig sjúklega hratt, á þá við að hann getur hlaupið yfir heilu höfin og þvíumlíkt! þegar þannig gaurar hlaupa svona hratt hægist þá ekki á öllu sem þeir sjá? sem sagt í rauninni hægja þær á öllu í kringum sig og í rauninni eru þeir bara á venjulegum hraða... það er í rauninni bara allt í kring sem hreyfist hægt...? því ef hann ætlar að hlaupa eithvað innanbæjar, inní hús og sona dót, þá getur hann ekki bara séð allt geðveikt hratt, því hann myndi aldrei geta beygt á milli herbergja því hann færi svo hratt inní þau að hann hefði enngan tíma til að fynna aðra hurð, og gæti til dæmis ekki gert einhvar netta og sniðuga hluti. Shit getur einhver svarað mér??

ps. Vita ekki allir hver Flash er annars? ... jú hlítur að vera!

Hér er kauði... rauður eins og blá málning. Sést hvað hann hleypur hratt á dótinu aftan á honum. Virkilega magnað dæmi.


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 21:10:30 / Bakkmann

Graskerinn rúlla

Þá er fyrstu umferð í afró cup í englandi búin og liggja niðurstöður fyrir...

 

Nr.
Lið
 
 
1.
Jensen skrímslin
59
 
 
2.
blue man group
48
 
 
3.
gjemlarnir
40
 
 
4.
már maskínan
38
 
 
5.
Alibaba 7
38
 
 
6.
FanUtd
35
 
 
7.
KF áviti
34
 
 
8.
Gressi no.1
33
 
 
9.
Dj-Simmó
31
 
 
10.
Iggipó
30
 
 
11.
The Black Ninja Club
29
 
 
12.
Grasker
28
 

Lítur svipað út og þessi íslenska deildin... ég byrja í neðsta en enda aldrei þar.

Svo þarf bara einhver að stoppa jensen því hann er nýkomin frá DK og hefur því forskot!

En neðsta sætið er frátekið fyrir hann ingvar aula... 


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 11:59:27 / jensen

Garðar, þú ert ekki lengur keisarinn..!

Ég vildi bara láta vita að í dag, 1. okt. 2007, missti Garðar "Keisari" Kjartansson nafnbótina "Keisarinn".
Þetta kemur til vegna þess að Draumadeildinni er lokið og enginn annar en Alexander "Keisari" Jensen Hjálmarsson stóð uppi sem sigurvegari.

Ég vil samt sem áður benda á það að þar sem að ég er staddur hjá ömmu minni í RVK eru blóm og gjafir afþakkað í bili. Ég treysti bara á það að það verði haldin skrúðganga mér til heiðurs þegar ég kem aftur í kaupstaðinn Selfoss.

Ég ætla að enda þessa tilkynningu á því að leyfa lokastöðu íslensku draumadeildarinnar að fljóta með. Og svona til að pirra þessu tapsáru, þá er ég ekki heldur búinn að breyta liðinu mínu síðan einhverntíma áður en ég fór út í sumar, s.s. einhverntíma í júní.

Nr.
Lið





1.
Jensen Skrímslin
391
2.
doddix
364
3.
bentros
358
4.
Alibaba 7
338
5.
Hrossi
322
6.
blue man group
296
7.
Ali Daei
276
8.
Grasker
262
9.
Már Maskínan
256
10.
Samkreistingur FC
236


11.
siggi24
229
12.
Dódó fc
227
13.
Iggipó
226
14.
Blómið
203


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 19:02:57 / gönnering

Sveitamenning

Ætlaði bara svona að leyfa eikkur að sjá hvernig lífið er í sveitinni...

Þetta er rosalegt kvikindi


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 12:51:11 / Bakkmann

Skitur Skitur

Skitur Skitur A Spani

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Klukkan